
AF HVERJU PLATINUM?
Í yfir 20 ár hefur PLATINUM lagt upp með að þróa og framleiða hágæðafóður fyrir hunda og ketti. Stofnandi Platinum, Rainer Voortman, vildi finna leið til að elda ferskt kjöt án þess að glata mikilvægum næringarefnum í matreiðsluferlinu, og fékk með sér meistarakokka í það verkefni. Úr varð Fleischsaftsgarung (FSG), sem er eldunaraðferð þar sem kjötið er hægeldað í eigin kjötsafa. Í kjölfarið var einnig þróað kisufóður eldað í ferskskjötsþurrkara, sem gerir þurrfóðrið einstaklega stökkt og bragðgott.
PLATINUM er eini framleiðandinn sem er vottaður af þýskum endurskoðanda sem vottar magn fersks kjötmetis í fóðrinu. Sjö ár í röð hefur PLATINUM verið valið besta hundafóðrið í Þýskalandi, með yfir 100.000 umsagnir og 4,9 í einkunn af 5 mögulegum. Fóðrið er reglulega prófað af óháðum aðila, einni virtustu prófunarstöðvum Þýskalands, ELAB Analytik GmbH.
.jpg)
.png)
Fleischsaftsgarung - FSG
FSG - Fleischsaftgarung er sérstök eldunaraðferð þar sem ferskt kjöt er hægeldað í eigin kjötsafa. Þetta er einstök eldunaraðferð í hundafóðri, en framleiðendur Platinum leituðu í aðferðir sem meistarakokkar nota fyrir bragðgóðan og hollan mat. Kjötið er eldað við lágt hitastig og engu vatni né soði er bætt við. Með þessari eldunaraðferð heldur kjötið í nauðsynleg vítamín og næringarefni, og því óþarfi að bæta við litarefnum eða bragðbætum.
Úr verður þurrfóður sem er ólíkt öðru þurrfóðri, en bitarnir verða mjúkir undir tönn og tútna ekki út í snertingu við vatn - en það dregur úr hættu á magasnúning eða magaþembu.
Platinum býður einnig upp á blautfóður fyrir hunda, sem líka er eldað með FSG-aðferðinni. Blautmaturinn fæst í þremur mismunandi stærðum.
.jpg)
MeatCrisp
PLATINUM notar Freshmeatdryer (ferskkjötsþurrkara) í framleiðslu á kattafóðri. Þessi aðferð varðveitir náttúruleg örnæringarefni og amínósýrur fersks kjöts, sem líkir enn betur eftir náttúrulegri bráð kattarins, heldur en aðrar fóðurtegundir. Fóðrið er þurrkað við lágt hitastig og með stöðugri loftrás, hægt og jafnt til að varðveita þau næringarefni sem eru nauðsynleg fyrir kisuna þína. Það inniheldur ekkert kjötmjöl eða dýramjöl.
Náttúrulegt bragðið gerir MeatCrisp fóðrið sérstaklega ljúffengt fyrir köttinn, en bragðið kemur allt úr fersku kjöti. MeatCrisp fær þetta nafn, þar sem bitarnir eru einstaklega stökkir – sem heyrist vel þegar kisan þín gæðir sér á þeim.

CARE vörulínan
Umönnunarvörurnar frá Platinum eru afskaplega vandaðar og gerðar úr 100% náttúrulegum hráefnum, án hráolíu, litarefna og parabena. Vörurnar fást ýmist í gel- eða spreyformi eða sem smyrsl. Hentar hundum og köttum á öllum aldri.

VETACTIVE vörulínan
Nýjasta viðbótin hjá PLATINUM er VETACTIVE vörulínan sem er sérstaklega þróuð til að styðja við hunda með sérþarfir. Fæst hjá völdum endursöluaðilum Petmark. Hentar til dæmis fyrir hunda með fæðuóþol, í yfirþyngd eða eru orðnir aldraðir. Allt framleitt eftir sömu hágæðastöðlum PLATINUM fóðursins.


