Skoðaðu ORIJEN-úrvalið fyrir hunda og ketti hjá Gæludýr.is.
Skoða ORIJEN hjá Gæludýr.isHugmyndafræði ORIJEN
Innblásið
af náttúrunni
Nafnið ORIJEN vísar til uppruna. Að baki vörumerkinu býr hugmynd sem sækir innblástur í náttúrulegt fæðuval forfeðra hunda og katta: ríkulegt magn dýrahráefna og fjölbreytni í hráefnavali.
Þessi nálgun er kjarninn í Biologically Appropriate-hugmyndafræði ORIJEN. Áherslan er á kjöt, alifugla, fisk og innmat í næringarríkum uppskriftum.
Ein hugmyndafræði fyrir hunda og ketti.

Ríkt af dýrapróteinum
Allt að 90% dýrahráefni í mörgum uppskriftum.
.png)
WholePreyTM hugmyndafræði
WholePrey hugmyndarfræðin byggir á því að öll bráðin sé nýtt – eins og hundar og kettir hefðu étið úti í náttúrunni.
.png)
Fersk og hrá hráefni
Fyrstu fimm hráefnin eru alltaf ferskar eða hráar dýraafurðir – næringarríkt kjöt, innmatur og bein.

Líffræðilega viðeigandi
Uppskriftir hannaðar fyrir náttúrulegar þarfir hunda og katta.
WholePrey
Ólíkir hlutar.
Fjölbreytt næring.
WholePrey byggir á því að nýta ólíka hluta dýrsins. Kjöt, innmatur og bein leggja hvert sitt af mörkum til næringarsamsetningar fóðursins.
Kjöt, alifuglar og fiskur
Uppsprettur próteina.
Innmatur
Náttúrulegar uppsprettur fjölbreyttra næringarefna.
Bein í litlu magni
Uppsprettur steinefna.
Nákvæm hráefni og samsetning ráðast af hverri uppskrift. Skoðaðu innihaldslýsingu viðkomandi vöru.
Hráefnin í sviðsljósinu
Hvað merkir
„ferskt og hrátt“?
Hugtökin lýsa því hvernig hráefnin eru varðveitt áður en þau fara í framleiðslu fóðursins.
Fersk hráefni
Hjá ORIJEN vísar „ferskt“ til hráefna sem eru varðveitt með kælingu eingöngu.
Hrá hráefni
Hrá hráefni eru varðveitt fryst áður en unnið er úr þeim.
Í innihaldslýsingu hverrar vöru kemur fram hvaða hráefni uppskriftin inniheldur.
Á bak við uppskriftirnar
Náttúran er innblásturinn.
Sérþekking mótar uppskriftirnar.
Að baki uppskriftum ORIJEN stendur teymi með sérþekkingu á næringu dýra, matvælafræði og dýralækningum.
Við þróun fóðursins er unnið með dýranæringarfræðingum, matvælafræðingum og dýralæknum. Þannig tengir ORIJEN saman hugmyndafræði sína um dýrahráefni og faglega þróun uppskrifta fyrir hunda og ketti.
Gott að vita
Nánar um ORIJEN
Hvað þýðir Biologically Appropriate?
Þannig lýsir ORIJEN hugmyndafræði sinni um fóður sem sækir innblástur í náttúrulegt fæðuval forfeðra hunda og katta, með áherslu á magn og fjölbreytni dýrahráefna.
Er sama hráefnasamsetning í öllum uppskriftum?
Nei. Dýrahráefni og hlutföll eru mismunandi eftir uppskrift. Skoðaðu því alltaf innihaldslýsingu og upplýsingar viðkomandi vöru.
Hvað merkir hlutfall dýrahráefna?
Prósentutölur í bæklingnum eru áætlaðar og miðast við hráefnin áður en þau eru unnin. Þær lýsa ekki próteinhlutfalli fullunnins fóðurs.
Endursöluaðilar
Hvar fæst ORIJEN?
Hér finnur þú endursöluaðila ORIJEN á Íslandi.
.png)
.png)
.png)
.png)
.png)
.png)